
Þingvellir · Geysir · Gullfoss
Gullhringurinn — einkaferð
Allir fara Gullhringinn — og það er skiljanlegt, því þar eru þrír af helstu stöðum landsins. En leyfðu mér að fara með þér, því það er svo margt að læra og ég á mína staði sem flestir missa af. Það getur orðið þröngt á háannatíma, svo við byrjum snemma og höldum okkur á undan stóru rútunum.
Dagurinn
- 01
Sótt á gististað og beint á Þingvelli — sögu-, jarðfræði- og lífríkisstaður í einu.
- 02
Austur með stuttu stoppi í heimalagaðan ís á kúabúi.
- 03
Gullfoss, sem margir telja fallegasta foss landsins. Hádegisverður þar.
- 04
Geysir. Sá gamli hefur verið rólegur lengi en Strokkur sér um fjörið á tíu mínútna fresti.
- 05
Á heimleið: Gamla laugin, Friðheimar eða Kerið — þú velur.
Innifalið
- Löggiltur leiðsögumaður allan daginn
- Einkabíll og eldsneyti
- Sótt og skilað á höfuðborgarsvæðinu
Ekki innifalið
- Hádegisverður
- Aðgangseyrir
Taktu meðHlý föt og góða gönguskó. Sundföt og handklæði ef þú vilt fara í Gömlu laugina — hvort tveggja er hægt að leigja á staðnum.
Úr ferðinni




Spurðu um dag
Ekkert er greitt núna. Pétur svarar með verði og nánari upplýsingum og dagurinn er bókaður þegar þið eruð sammála.
Allar ferðir